María Tjáir sig
12.06.2006 19:21:44 / María

Breytingar eru til hins góða

Hey .. ég ætla að færa mig á


allavegana í bili.. maður veit aldrei hvað gerist í framtíðinni - þar mun ég vera dugleg að blogga á meðan ég er úti á Benidorm! :)

María - breytingum háð


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 02:04:19 / María

Á ég að breyta til?

Hmm - ég er að pæla hvort ég eigi að breyta til að færa mig á bloggar.is

Slóðin á síðunni er mariagudjons.bloggar.is .. - tékkið á þessu og látið mig vita hvort er betra... Að vera hér, eða breyta til :)

María - Hugsi :$

PS. Ég minni samt sem áður á nýtt blogg hér að neðan :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 01:45:10 / María

6 Dagar - Yesss :D

Hææ :haha:

6 Dagar í Benidorm! .. ég get ekki beðið - við fljúgum 6.10 um morguninn svo maður verður að mæta snemma upp á flugvöll til að tékka sig inn og svona =)

Ég efa það ekki eina mínútu um að þetta verði frábær ferð sem mun einkennast af afslöppun, leik, sólböðu,, suni og endalausri skemmtun :)

Núna er veðrið um 27-30 °C og ég verð að segja að ég er mjög sátt með það ;)

Það sem þarf að passa er að bera helv. sólarvörn á sig númer svona 30! til að  brenna ekki .. því ekkert er leiðinlegra heldur en að brenna! .. Svo 28. júní kem ég vonandi heim með EINHVERN lit! ..

Mamma og pabbi komu loksins heim í gær eftir að hafa verið á Lanzarote í 2 vikur og mikið er gott að hafa þau heima! .. Svo þegar ég og Elín Helga förum út þá verða þau ein heima í 2 vikur (Árnný á Bifröst og Þór í Njarðvík vegna vinnu)

18.júní næstkomandi verður einmitt ár síðan við Þór trúlofuðumst .. :) Til Hamingju við... fyrirfram ;) og þá erum við búin að vera saman í 1 ár og 9mánuði! .. ójá.. 

Undanfarna daga er ég búin að vera að rifja upp spænskuna og vitiði, ég kann bara heilmargt, það eina sem er flókið er að beygja helv. sagnirnar í þátíð.. eða þátíðum af því í spænsku er allt morandi í þátíðum! :P

Im out!

María - 6dagar ;)

PS: Ég er búin að bæta við "Kannanir" í aðalvalmyndina, þar getiði séð allar kannanir sem ég hef sett á síðuna ´samt úrslitum og fjölda þátttakenda :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 01:57:31 / María

Hreinskilni! :)

Hæ Þið :)

Í kvöld ákváðum við vinahópurinn að hittast og tala um komandi ferð til Costa Del Sol og ganga frá atriðum sem átti eftir að ganga frá.

Einnig er búinn að vera mikill pirringur í gangi innan hópsins og ákváðum við stelpurnar, Ég, Agnes, Hanna, Helga og Hrafnhildur að vera eftir heima hjá mér eftir að við vorum búin að ræða ferðina og ræða okkar mál og vera hreinskilnar, tala út um hlutina og ákváðum við að engin færi fyrr en búið væri að ræða allt út svo allir yrðu sáttir.

Við grétum, hlógum, öskruðum, fyrirgáfum, föðmuðumst og SÆTTUMST !

Ég vil þakka ykkur elska sætu stelpur fyrir að vera til og geta talað saman! .. og við skulum halda þessu svona því þá líður okkur öllum svo miklu betur. Mér þykir ótrúlega vænt um ykkur og mér finnst frábært að við séum að þróa vináttu sem endist vonandi alla ævi.

Ég er til staðar fyrir ykkur og það er frábært að vita að þið séuð til staðar fyrir mig!

*knús*

María - vinkona ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 14:28:41 / María

Sex And The City :)

Hola! 8)

Ég fékk lánaðar allar seríurnar af Sex and the city hjá Þórdísi systur Þórs míns, á mánudaginn! - Ég var búin að hor´fa á fyrstu og aðra seríu, en horfði á restina og kláraði þetta í nótt :P

Og váá, ég grenjaði ekkert smá yfir síðustu 2 þáttunum! .. úff, þetta eru svo geggjaðir þættir! ..

Næst á dagskrá er að downloada One Tree Hill, The OC og Desperate Housewives,  vegna þess að ég er eftir sjónvarpinu í öllum þessum þáttum og það er farið að skapa vandræði, ég þarf alltaf að loka augunum þegar það koma auglýsingar á Skjá 1 úr OTH og OC :P og ég bara meika þetta ekki lengur! ;)

Mamma og pabbi eru ennþá úti á Lanzarote og líður vel, en þau koma sem betur fer heim á þriðjudaginn - ég er farin að sakna þeirra all verulega.

Ég er búin að vera að sjá um heimilið á meðan (mín vinna) ásamt því að fá hjálp frá Elínu Helgu og fylgjast með henni. Skutla henni fram og  til baka og svona, og vá hvað ég skil mömmu að vera þreytt á því, ég er búin að vera að þessu í 1 og hálfa viku en mammá í MÖRG ár ! ... Ég held að maður geti aldrei skilið fullkomlega eitthvað sem einhver gengur í gegnum fyrr en þú gengur í gegnum það sjálf/ur! :$

En já, ég er svo búin að vera að vinna á Pizza Hut líka á milli og er það helvíti fínt :) enda stuttar og góðar vaktir :) (16-20) eða (18-21) :)

11 dagar í Benidorm - og nýjustu fréttir þaðan eru að Thelma frænka og Marko Daníel sonur hennar koma með - svo enn bætist í þennan frábæra hóp, svo þetta getur ekki verið skemmtilegra! :)

Ég er farin! Njóta þess að vera vakandi án Sex and the city :(

María - Húsmóðir


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 12:54:29 / María

:o)

Guten Tag! ;)

Ég er mætt aftur á klakann eftir að hafa dvalist í Þýskalandi síðan á fimmtudag :)

Ég fór með skólanum - þetta var áfangi þar og ég kom heim í gærdag :)

Við vorum 10 krakkar sem fórum og 2 kennarar =) Þau voru öll frábær og það myndaðist þvílík stemming í hópnum =)

Við ferðuðumst um allt í lestum - og við vorum alltaf að gera eitthvað! Ég hef aldrei labba' jafn mikið - við fengum samt alltaf eiginlega að ráða hvað við gerðum og hvað við skoðuðum .. Ég nenni ekki að koma með nákvæma ferðalýsingu núna en þetta var snilllllldarferð :) Ég verslaði mér slatta.. en samt ekkert geðveikt mikið! .. og svo át maður steikur næstum alla daga ... Maður vaknaði yfirleitt aldrei seinna en 10 og fór alltaf að sofa um 4 !! :) Þetta var bara snilld og ferlega gaman! :) Ég var samt mjög ánægð þegar ég kom heim .. þreyttt og ánægð =)

Næsta mál a dagskrá er svo bústaður með vinunum um helgina og svo er það bara vinna og vinna eins og maður getur þangað til 14.júní - en þá fer ég til Benidorm með Elínu Helgu og fleirum og það verður æðislegt - Liggja í sólinni og busla í sjónum í 2 vikur . ég er til! :)

Ég er búin að fá út úr öllum prófunum mínum og náði ég öllu!! Þar á meðal íþróttum!!! :D :D :D Ég gæti vart verið ánægðari .. =)

Hérna eru einkunnirnar:

Ítalska - 5

Enska - 5

Náttúrufræði - 6

Sálfræði -6

Íslenska - 7

Þýska (ferðin sem ég fór og verkefni tengd henni) - 8

Þýska (áfanginn venjulegi) - 9

Þannig á þessari önn fékk ég 21 einingu! :) Svo er það bara síðasta menntaskólaárið mitt eftir sumarið! - Ójá - tíminn líður ! =)

Ciao! =)

María - ferðalangur og skólaséní! ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 20:47:59 / María

Prófin Búin! :)

Hæhæ

2 blogg á innan við viku! Que Pasa! ;)

Ég kláraði prófin mín í gærmorgun :) Ég fór í þýsku og gekk bara ágætlega .. ég veit að ég næ :)

Ég er búin að fá út úr náttúrufræðiprófinu mínu og fékk 6 :) Ég er mjög sátt miðað við það að þetta er mitt lélegasta fag plús að ég fór í sálfræði sama dag !! :)

Ég er búin að ná leikfimi ... svo ég á bara eftir að fá út úr íslensku og þýsku ..

Þýskaland eftir 5 daga - Benidorm eftir 32 daga - Costa Del Sol eftir 82 daga.. Ég er að fílaða! :)

Ég skellti mér í sund með Magga og Hrafnhildi .. það var nice og við sáum fyndnasta gaur í heimi .. var svaka massaður og ýkt tanaður .. og var svona hnakki ;) labbaði um sundlaugapakkann trommandi á magavöðvana sínu pottþétt hugsandi "I´m The Man" svo áður en hann stakk sér til sunds þá tók hann nokkrar velvaldar pósur á bakkanum ;) Og þetta er ekki allt.. svo fór hann í sturtuna sem er úti (sturtu eftir gufuna held ég) og þá tékkaði hann á typpinu á sér.. Kíkti svona ofan í sundskýluna! .. Við dóum úr hlátri næstum því - eins og flest allir í lauginni! :)

Í gær var ég svo í rólegheitum með Þór mínum og fjölskyldunni ..

En í kveld er planið að fara í bíó með Hrafnhildi og sennilega kaupa ís - eins og við erum búin að gera alltaf nema í gær í svona viku! :)

Á mánudaginn byrja ég svo í vinnunni minni .. ég mun vinna hjá mömmu við að sjá um heimilið í allt sumar..  og ég fæ kaup! ;) :) Svo verð ég á Pizza Hut og er búin að láta næstum alla vita að ef þeim vanti að losna við vakt þá er um að gera að hringja í mig og ég mun taka vaktina :)

Ég er allavegna komin með svona 10 vaktir frá 1-14.júní og það er mjög fínt .. =)

Safna og safna pening fyrir þessum utanlandsferðum!

Ég ætla nú líka að dusta rykið af spænsku glósunum mínum og möppunni síðan á Salamanca og rifja upp spænskuna! :) Þá get ég bjargað mér og fleirum á Benidorm og Costa Del Sol.. er það ekki málið! .. ég kann nú eitthvað ennþá.. þarf að rifja upp samt =)

Hasta La vista

María - Loca!


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 23:25:23 / María

Good News :D for me ;)

HæHæHæ :D

Undanfarna daga hefur verið mikið um próflestur ;) Það er bara mjög fínt ..:)

Ég fór í tvö próf á fimmtudaginn (4.Maí) - Sálfræði og Náttúrufræði, ég lagði meiri áherslu á nátturfræðina vegna þess að ég sökka í henni.
Ég náði sálfræði - fékk 6 og sennilega næ ég náttúrufræði líka.
Fór svo í íslensku í gær og gekk vel =) þá er bara þýskan eftir!

Ég er svo búin að vera að mæta í sporthúsið núna 2x á dag og ég mun ná :) Á bara 6x eftir .. jibbíí :D - þarf að skila á föstudaginn. Fór líka í sund í gær og sollis stemmari :)

Ég var að vinna í dag - og svo eftir vinnu frétti ég að ég er á leiðinni til Benidorm í sumar!! :) Með Kristínu (systur mömmu), Elínu Helgu (systur minni) og Reyni Frey (syni Kristínar) og Önnu Ragnhildi og Birtu (systur sem eru barnabörn Kristínar)
Ég og Elín Helga förum frítt ;) og verðum að fylgjast með krökkunum :) Þetta verður brjálað stuð .. :D Ég get ekki beðið fer 14-28 Júní!

Svo er ég að klára prófin á föstudag (bara þýska eftir) =) og ég næ henni! og svo til Þýskalands með skólanum þann 18.maí.

Svo er það bara Costa Del Sol 3ja ágúst.

Lífið leikur við mig þessa dagana loksins eftir mikla erfiðleika vegna veikinda pabba og svoleiðis - og líður mér vel.. og ég er ekki frá því að sólin á smá þátt í því :D

See Ya!

María - Sólarelskandi!

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 23:06:47 / María

Ferming, árekstur, bílakaup ;)

Hey, þið getið hætt að væla, María is back ;)

Margt er búið að gerast síðan ég bloggaði síðast.

Á sumardaginn fyrsta fermdist litla systir mín, Elín Helga og var þetta mjög góður dagur í alla staði, helvíti fínn matur og Elín Helga fékk slatta af gjöfum. Meira að segja var bara ágætt í kirkjunni. Enda er fríkirkjan allt öðruvísi en þessi leiðinda þjóðkirkja.

Í páskafríinu naut ég þess hreinlega að vera til. Var með Hrafnhildi, fylgihlut og gerpi eins og fjölskyldan kýs að kalla hana, alla daga ;) Og skelltum við okkur í partý á eftir partýi :) og skemmtum við okkur konunglega. Mér tókst meira að segja að komast upp í 10 mætingar í sporthúsinu svo allt stefnir í það að María nái íþróttum loksins.

Ég mætti svo í skólann galvösk á mánudeginum fyrir viku! ... Hress og kát og til í allt ;) Komst að því að ég væri búin að ná ítölsku:) Ég skellti mér svo uppí hvíta folann (golfinn, bílinn hans Þórs) ásamt Helgu og við fórum að ná í Matta og Hrafnhildi. :) Á leiðinni upp í skóla aftur lentum við í því miður skemmtilega atviki að lenta í árekstri. 4 bíla árekstur á Kringlumýrabraut og vorum við 4 bíll. :/ Það komu illa merktar vegaframkvæmdir svo ég þurfti að beygja snögg og lenti þá aftan á :/ Umferðin stöðvaðist vegna þess að gamall kall sem var fremst stoppaði til þess að skoða skilti til þess að ákveða hvað hann ætti að gera :S Og hann er sá eini sem var í 100% rétti! :S Ég reyndi að stýra frá ... en tókst það ekki. Enda á svona 60-80km hraða :/ Við hringdum í sjúkrabíl vegna þess að Hrafnhildur missti andann, en svo kom í ljós að hún er bara marin vegna beltisins. Ég og Helga mörðumst einnig eftir beltið, en það hefði getað farið verr án beltana. Ég fór í sjúkrabíl í fyrsta skipti svo þetta var heljarinnar ævintýri ;) Bíllinn er ónýtur ... Ég þakka bara fyrir að við fórum ekki verr út úr þessu :)

Jæja.. Fyrst að bíllinn var ónýtur ákváðum við Þór bara að kaupa okkur nýjan ;) Keyptum okkur á fimmtudaginn WV BORA - svartan með topplúgu og viðaráklæðningu inn í og svona. Set myndir inn þegar að ég er búin að henda í tölvuna :) Ég er mjög sátt... 2002 árgerð og jamm, ég er ástfangin :D ;)

Um helgina var svo stelpukveld, gistum allar heima hjá pabba Hrafnhildar og við borðuðum spiluðum hlógum og ég veit ekki hvað og hvað. Ég var samt með hassperur (harðsperur) í maganum vegna þess að ég hló svo mikið! :D

Ég skellti mér líka 2x í bíó... fór á Ice Age 2 og Rauðhettu.. mæli með báðum. Snilldar myndir :) Sérstaklega ef þið fílið teiknimynir og aulahúmor ;)

Núna eru prófin að skella á .. ég fer í sálfræði OG náttúrufræði á fimmtudag (er að læra undir þau) svo fer ég í íslensku á mánudaginn og þýsku á föstudeginum 12.maí. Þá er ég búin. Þá er að vinna og svo að sjálfsögðu Þýskaland 18-23.maí! :D Jeij..

Ég skal reyna að blogga meira ;)

Ciao :)

María - bílaeigandi með meiru ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 13:32:36 / María

MIKIÐ AÐ GERA! :)

Hæææ! :)

úffff .. langt síðan ég bloggaði!

á þessum tíma sem ekkert blogg kom hefur verið mikið að gera.... ég átti meðal annars afmæli þann 30. mars og varð 19 ára gömul! :) Árnný sæta systir átti afmæli og varð 21 árs, Ása mín besta vinkona átti afmæli og varð einnig 19 ára ... og svo margt fleira. :)

Ég hef aðalega verið þessa dagana á æfingum fyrir leikritið okkar. Rocky Horror. :) Ég er búin að vera án þess að ýkja síðastliðnar 2 vikur frá klukkan 8-02 (um  nótt) að vinna ... ef ekki í skólanum, þá beint á æfingu og æfa fyrir Rocky Horror :)

Í gær var frumsýning! :) Og allir skemmtu sér konunglega og tókst okkur vel upp :)
Vegna leiðinlegra aðstæðna sem ég kýs að kalla Sigurð Kaiser þá fáum við ekki að sýna nema í gær, á laugardag og sunnudag :/

Okay ... málið er að Sigurður Kaiser á sýningaréttinn á Rocky Horror hér á landi. Þess vegna ákvað hann 2 dögum fyrir frumsýningu að banna okkur að sýna! Þetta leit út fyrir það að við fengjum ekkert að sýna þrátt fyrir að hafa unnið að þessu hörðum höndum í mánuð!

Menntaskólar hafa alltaf fengið að setja upp það sem þeim sýnist án þess að þurfa að ræða við kóng né prest vegna þess að þetta eru bara það litlar sýningar..  en ekki núna ... Siggi Kaiser tók sér stöðu kóngs og prests og varð brjál :S

Sem betur fer eigum við góða skólastýru sem gerði allt sem í hennar valdi stóð til að redda málunum og fáum við þess vegna þökk sé henni og lögfræðingum að sýna þessar 3 sýningar sem er 1/3 af því sem við áttum upphaflega að fá að sýna :/

Svooo ef þið viljið sjá - þá talið við mig og ég redda ykkur miðum. Það er líklegra að þið fáið miða á laugardeginum (á morgun) kukkan 20.00 samt :*

-------

En jamm - yfir í allt annað. Árshátíðin var í gær ! :) Og skemmti ég mér konunglega í góðra vina hópi og kom heim um 2.30 :) Og núna er komið Páskafrí í skólanum! :)

----

Framunan er eftirfarandi.

Í kvöld: Úrslit Idol! :D Áfram Ína :)
Á morgun laugardag 8unda apríl: Skírn hjá Sunnu Dís frænku, skíra á litla kútinn hennar :), svo sýning klukkan 20.00
Á sunnudag: ferming hja Haraldi Einari og sýning klukkan 21.00 =)
Í næstu viku, chilla, vinna og  halda upp á páskana og einhverjar fermingar.
20 apríl! Elín Helga að fermast !! :D  Hún verður  glæsilegast fermingabarn sem sögur hafa farið af ;)

....

En jamm ..ég er þotin að versla á laugaveginum :D :*

Ciao!

María - upptekna, en þó í fríi í dag :D

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 20:16:02 / María

Hæ! :)

hæææ! :)

Takk fyrir að commenta á síðasta blogg ! :)

Síðasta vika var brjálæði - ég var í leikprufum og söngprufum alla vikuna - og inn á milli var ég í ökutímum!

Út úr þessu öllu kom að ég mun syngja í leikritinu! - Ég var mjög sátt - ég syng sem sagt upphafslagið ásamt Eyrúnu og svo syngjum við bakraddir í öllum lögunum! :) Við erum sem sagt inn á sviðinu allan tímann í hörku fíling! :)

Ég tók svo loksins "Hið langþráða bílpróf" á föstudaginn og ég náði! Jamm - þetta var langþráð fyrir alla nema mig eiginlega ;) Því annars hefði ég bara skellt mér í það fyrr. En ég er sem sagt farin að geta krúsað um götur bæjarins á Golfinum "okkar" Þórs :D

Hann treystir mér fyrir bílnum - held að hann sé mest hræddur um að ég slasi mig frekar en að ég slasi bílinn. En ég fer varlega... allavegana fyrst um sinn. Ég fór á smá rúnt með Elínu Helgu áðan og hún treysti mér vel - og það er fyrir öllu að henni líði vel og sé ekki hrædd með mér í bílnum :)

En jamm - svo var MK-dagurinn á laugardaginn - ég var að syngja þar á klukkutimafresti sirkabát =) og svo vorum við sem erum að fara út til Þýskalands með kaffisölu og happdrætti og gekk það mjög vel. En það söfnuðust 116þús krónur og það er rúmur 10þús kall á mann :D

Ég er að fara í bað og svo í bíó með krakklingum :)

Thelma og Marko Daníel - ég vona að þið hafið það gott úti :) *knús*

Farin,

María - Driver ;):klikk:


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 23:59:22 / María

Testing .. testing...

Hææ :)

Langar að gera smá könnun :)

Ef ÞÚ ert að lesa þetta þá áttu að kommenta :) - sem sagt allir þeir sem skoða bloggið mitt vinsamlegast kommentið og látið vita - gaman að vita hver er að fylgjast með manni! :) Svo kem ég með dúndurblogg þegar ég hef fengið nokkur comment hérna :D

Ást,

María - Testari :)

PS. Ég er að fíla þessa bleiku stafi :lol:

» 16 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 23:01:15 / María

Ég er í fýlu! :(

8) - ég er sko með sólgleraugnakall svo þið sjáið ekki tárin mín!

Ég er ekki sátt...

Idol í kvöld - Nana datt út :( Uppáhaldið mitt.

Ef þið viljið segja eitthvað slæmt um hana eða segjast vera fegin yfir því - sleppið því .. hlusta ekki á svoleiðis rugl :P

En jamm - nenni ekki meir.

María - ósátt og fúl.. :frown::evil:

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 01:05:06 / María

Sex And The City

Tralalala :D

Ég Elska Sex And The City !! :D og OC og One Tree Hill, Friends og Desperate Housewives .. hmm .. en samt ætti ég að vera að lesa Sjálfstætt fólk núna :P

ciao

María - Sem er að horfa á Sex and The City

» 11 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 18:13:12 / María

Veikindarugl :/

Hæhæ :)

Ég er búin að vera veik síðan á mánudag.
Ég reyndar byrjaði á föstudag eða laugardag með hæsi, talað mjög skemmtilega ;) Ég fékk svo kvef á manudaginn og var með hausverk og bara svona slöpp. Ég er samt orðin hress núna og mun mæta hress og kát í skólann á mánudag ! :)

Ína Björk og Hugrún komu til okkar á laugardeginum :) Við horfðum á Eurovision og spjölluðum, kíktum í bæinn og höfðum bara mjög góðan systra-sólarhring! :) Við vorum allar MJÖG sáttar með úrslitin í Eurovision! ;)

Á sunnudagskveld fór ég til Hönnu að spila póker ! :) Við Bobbyngarnir plús Begga (soon to be Bobbyngur) spiluðum póker til að verða 2 :) Það var bara snillld!! og vil ég gera þetta sem allra fyrst áður! og þá lika ÁN spilapéninga :D Það er svo helvíti gaman að sjá peningana á borðinu .. eða mér finnst það. Ég kom út í gróða, Hanna líka, Hrafnhildur hugsanlega líka en Helga tapaði öllu og Agnes kom svona slétt út held ég, enda ekkert að marka það því hún fór fyrst heim! AULI ;) :*

Á mánudag var enn vetrarfrí - og ég held að ég hafi ekki gert rassgat þá. Ég er svo bara síðustu daga búin að vera heima, og borða ólívulauf sem eru snilld! Ef þú ert kvefaður eða eitthvað og tekur þau svona 4-5x þá batnar manni helling :) Það gerðist fyrir mig allavegana.

Ég og Þór vorum alein heima frá þriðjudegi-fimmtudags. Mamma á heilsuhælinu í Hveragerði, Elín Helga á Bifröst hjá Árnnýju og pabbi úti í London á leik Chelsea-Barcelona :) Sem er bara snilld! =)

Ég lærði undir bóklega bílprófið mitt í 4x á miðvikudagkveldi og skellti mér svo í það í gær (fimmtudagsmorgun) og ég náði!! :) Jeijj .. bara 1 fokking villa :) Ég er mjög svo stolt af mér .. og bögg er afþakkað, en blóm, gjafir og hamingjuóskir eru þáðar takk :)
Næsta skref er verklega en það verður ekki alveg strax ;)

Tjahh .. Ég, Þór og Elín Helga fórum i heimsókn til mömmu í gær á heilsuhælið og var það bara helv. fínt =)

Í kvöld er Idol og ætla ég að sjálfsögðu að horfa. Svo fer ég í afmæli hjá vini hans Þórs, Gústa, en hann er 26 ára kallinn :) Við gistum svo í Njarðvík í kveld og svo kem ég heim á morgun um 15.00 og fer í ökutíma :P

En jamm - hlakka til að sjá kommentum rigna yfir bloggið mitt ;)

Adios!

María - Soon to be driver

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7